Kjarni
Lögmannsstofa
Frá stofnun hafa lögmenn stofunnar unnið að fjölmörgum verkefnum fyrir margvíslega viðskiptavini með góðum árangri. Lögmenn stofunnar eru bjartsýnir á horfur í íslensku efnahagslífi og hyggja á frekari vöxt. Vanti þig aðstoð erum við boðin og búin að aðstoða þig við að ná þeim markmiðum sem stefnt er að. Við tökum vel á móti þér.
Samningagerð
Við höfum áralanga reynslu í gerð samninga og túlkun þeirra fyrir viðskiptavini okkar. Mjög mikilvægt er að tryggja að samningar séu áreiðanlegir og skiljanlegir í samræmi við þarfir hvers og eins.
Áreiðanleikakannanir
Við kaup og sölu fyrirtækja mat á viðskiptatækifærum er nauðsynlegt að gera haldgóða áreiðanleikakönnun, due diligence. Þar höfum við mikla reynslu í skattamálum og fyrirtækjaráðgjöf.
Lausn ágreiningsmála
Við leggjum mikla áherslu á að leysa málin, helst án aðkomu dómstóla. Reynslan sýnir að aðilar þurfa stundum að gefa eftir til að ná betri niðurstöðu. Til að svo megi vera er mikilvægt að gera áhættu- og hagsmunamat í upphafi og greina mögulegar niðurstöður.
Almenn lögfræðiráðgjöf
Stór hluti viðskiptamanna okkar eru einstaklingar og fjölskyldur. Þar reynir oft á helstu hagsmuni hvers einstaklings, s.s. við kaup og sölu fasteigna, forsjá barna, skipting eigna og möguleg ráðstöfun eigna með erfðamálum.
